Opnunarmót Jaðarsvallar - úrslit

Opnunarmót Jaðarsvallar var haldið sunnudaginn síðastliðinn. Veðrið var með ágætu móti, heitt loft en vindurinn gerði keppendum oft á tíðum erfitt fyrir.

47 kylfingar tóku þátt í mótinu og voru efstu sæti og verðlaunahafar í mótinu sem hér segir.

1.sæti: Anton Ingi Þorsteinsson 41 punktur
2.sæti: Reimar Helgason 37 punktar
3.sæti: Brynjólfur Sveinsson 36 punktar
4.sæti: Júlíus Tryggvason 35 punktar

Nándarverðlaun
4.hola: Ísak Kristinn Harðarson 332 cm
8.hola: Axel Arnar Finnbjörnsson 691 cm
11.hola: Heiðar Davíð Bragason 361 cm
14.hola: Tumi Hrafn Kúld 185 cm
18.hola: Starkaður Sigurðarson 102 cm

Verðlaunahafar geta nálgast verðlaun sín í afgreiðslu GA.