GA náðu 5. sæti á Íslandsmóti Golfklúbba á Akranesi

Víðir Steinar var hluti af sveit GA um helgina
Víðir Steinar var hluti af sveit GA um helgina

Sveit GA spiluðu á Akranesi um helgina í 1. deild á Íslandsmóti Golfklúbba. GA var í riðli með GR, GM og Jökul og lentu okkar menn í smá basli í riðlakeppninni þar sem niðurstaðan var tvö töp og eitt jafntefli. Staðan leit því ekki sérlega vel út eftir riðlakeppnina en okkar menn rifu sig heldur betur í gang eftir það.

Þeir sigruðu fjórða leikinn sinn á móti Golfklúbbnum Leyni með miklum yfirburðum en sá sigur tryggði þeim sæti í 1. deild að ári. Að lokum var svo spilaður leikur gegn Golfklúbbi Setbergs þar sem GA stóðu uppi sem sigurvegarar 3-2. Okkar menn enduðu því í 5. sæti af 8 liðum sem verður bara að teljast flottur árangur! 

Sveitina skipuðu þeir Heiðar Davíð, Víðir Steinar, Eyþór Hrafnar, Tumi Hrafn, Gunnar Aðalgeir, Lárus Ingi, Sturla Höskuldsson og Kristján Benedikt.