Andrea Ýr úr GA í undanúrslit

Andrea Ýr Ásmundsdóttir úr GA hefur leikið frábærlega og er komin í undanúrslit í íslandsmótinu í holukeppni sem er haldin í Borgarnesi. Andrea mætir Perlu Sól úr GR á morgun og í hinum undanúrslitunum eigast við Hulda Clara frá GKG og Guðrún Brá úr GK.