Andrea í 7. sæti á Íslandsmótinu og Veigar í 13. sæti

mynd/ seth@golf.is
mynd/ seth@golf.is

Íslandsmótinu í golfi lauk í gær í rjómablíðu á Urriðavelli hjá Golfklúbbnum Oddi í Garðabæ. Íslandsmeistarar voru þau Logi Sigurðsson GS og Ragnhildur Kristinsdóttir GR eftir harða baráttu. 

Golfklúbbur Akureyrar sendi 8 keppendur til leiks og fóru fimm þeirra í gegnum niðurskurð, bestum árangri í karlaflokki náði Veigar Heiðarsson en hann spilaði hringina fjóra á samtals einu höggi yfir pari og endaði í 13. sæti, þá endaði Andrea Ýr í 7. sæti í kvennaflokki á samtals 9 höggum yfir pari. Flottur árangur hjá Andreu og Veigar en hér að neðan má sjá skor GA keppenda á öllum keppnisdögum.

7. sæti: Andrea Ýr Ásmundsdóttir 72-73-75-73 +9
13. sæti: Veigar Heiðarsson 75-70-66-74 +1
T25. sæti: Skúli Gunnar Ágústsson 74-80-71-70 +11
T37. sæti: Tumi Hrafn Kúld 84-69-75-73 +17
T52. sæti: Valur Snær Guðmundsson 80-75-80-72 +23
MC: Mikael Máni Sigurðsson 86-73
MC: Lárus Ingi Antonsson 87-80
MC: Óskar Páll Valsson 83-85