Golfreglukvöld GA félaga 27. mars

Miðvikudagskvöldið 27. mars ætlum við hjá GA að bjóða upp á golfreglukvöld fyrir félagsmenn okkar. 

Golfreglurnar tóku töluverðum breytingum í janúar á þessu ári og ætlum við að fá hann Tryggva Jóhannsson dómara til að fara yfir helstu breytingar og reglur fyrir okkur. 

Það er gríðarlega mikilvægt að kunna undirstöðuatriði í golfreglum og kynna sér þær vel fyrir sumarið og erum við hjá GA ánægð með að hafa fengið Tryggva til að fara yfir málin með okkur. Við hvetjum að sjálfsögðu alla GA félaga til að koma á reglukvöldið og kynna sér breyttar golfreglur fyrir sumarið.

Herlegheitin verða á Jaðri og hefjast kl.20:00. og mun Jón Vídalín standa vaktina líkt og honum einum er lagið.