Nýliðar

Skráðu þig á póstlistann hjá okkur

Nýliðar

Jaðarsvöllur - æfingaflatirHjá GA leggjum við áherslu á að taka vel á móti nýliðum í klúbbinn, bæði þeim sem eru að stíga sín fyrsta spor og þeim sem hafa reynslu af golfi annars staðar frá.   

Það er með golfið eins og aðrar íþróttir það er alltaf einhver þröskuldur að sigrast á, en munum það að allir kylfingar hafa verið nýliðar.  Við bjóðum upp á nýliðanámskeið allt árið um kring, á vorin og sumrin á æfingasvæði klúbbsins að Jaðri og á veturna í inniaðstöðunni okkar í Golfhöllinni (sem staðsett í kjallara íþróttahallarinnar).  Ætlast er til að nýliðar sem ekki hafa fengið skráða forgjöf fari á slíkt námskeið.   

Nýliðanámskeið felur í sér eftirfarandi:

  • Sex kennslutímar hjá golfkennara GA
  • Reglu- og upplýsingakvöld í umsjón golfkennara, dómara og/eða nýliðanefndar
  • Kynning á forgjafarkerfinu og aðstoð að skrá forgjöf
  • Kynning á www.golf.is - skráning á rástíma og í golfmót  

Námskeiðsgjaldið gengur upp í árgjald viðkomandi gangi nýliðinn í klúbbinn innan fjögurra vikna frá námskeiði. 

Hægt er að sækja um aðild að klúbbnum á skrifstofunni í golfskálanum, með því að hringja í síma 462 2974, eða með því að senda inn umsókn í gegnum gagolf.is.   

Helstu upplýsingar má nálgast eftir þessum leiðum:

  • Símanúmer GA: Golfskáli 462 2974 | Golfhöllin 462 3846 | Framkvæmdastjóri 896 6814 | Golfkennari 844 9001
  • Heimasíða GA: www.gagolf.is
  • Netfang GA: gagolf@gagolf.is  

Velkominn í Golfklúbb Akureyrar - við tökum vel á móti þér

Golfhöllin verðskrá

Þeir sem ekki eru félagar í Golfklúbbi Akureyrar eru velkomnir að koma og nýta þá aðstöðu sem í boði er í kjallara Íþróttahallar gegn vægu gjaldi. Stakur tími/daggjald kr. 500.- Mánaðarkort kr. 2.500.- Kr. 5.000.- kort sem gildir fram á vorið.

 

Svæði