Gleðilegt nýtt ár!

Golfklúbbur Akureyrar óskar öllum kylfingum nær og fjær gleðilegs árs og þakkar fyrir góðar og skemmtilega stundir á liðnu ári!

Árið 2015 verður stórt ár í sögu GA þar sem klúbburinn heldur upp á 80 ára afmæli sitt á árinu og verður ýmislegt gert í tilefni afmælisins.

Meðal annars verður farið í  skemmtilega afmælisferð til Islantilla á Spáni í byrjun apríl og þar verða tæplega 60 hressir GA félagar.

Í sumar  munum við svo halda Íslandsmótið í holukeppni um miðjan júní og hlökkum við mikið til þess :)