GA og Íslandsbanki framlengja samstarf

Jón Birgir útibústjóri Íslandsbanka á Akureyri og Steindór Kristinn framkvæmdarstjóri GA.
Jón Birgir útibústjóri Íslandsbanka á Akureyri og Steindór Kristinn framkvæmdarstjóri GA.

Íslandsbanki og GA hafa gengið frá samningi um áframhaldandi samstarf sem er framlenging á farsælu samstarfi því Íslandsbanki hefur í mörg ár verið einn af helstu bakhjörlum Golfklúbbs Akureyrar.

„GA hefur í mörg ár átt heilladrjúgt samstarf við Íslandsbanka og það er fagnaðarefni að þannig verði áfram og hlökkum við mikið til áframhaldandi samstarfs. Stuðningur Íslandsbanka skiptir miklu máli fyrir GA" segir Steindór K Ragnarsson framkvæmdastjóri GA. 

„Íslandsbanki er að styðja vel við margvíslegt starf á sviði íþrótta- og æskulýðsmála, sem á öðrum vettvangi. Markmið bankans er að styðja GA í sínu öfluga íþrótta- og uppeldishlutverki sínu á Akureyri. Góður Jaðarsvöllur og aðbúnaður þar skiptir miklu máli þegar horft er á Akureyri sem valkost til ferðalaga og búsetu.“ sagði Jón Birgir Guðmundsson, útibússtjóri Íslandsbanka á Akureyri.