Birgir V. Björnsson golfkennari og golfkylfusmiður á Klöppum 12. september

Birgir V. Björnsson, golfkylfusmiður og golfkennari mun koma norður á fimmtudaginn næsta 12. september og vera með mælingar á golfkylfum hjá okkur. Birgir verður á Klöppum á milli 13:00-19:00. Birgir er sá færasti á sínu sviði hér á Íslandi og sérsmíðar golfkylfur eftir hentileika hvers og eins. 

Hægt verður að prufa nýjustu Titleist og Ping kylfurnar og fá fullkomna mælingu frá Birgi. Mælingin kostar 12.000kr og er þá mælt fyrir járn, hybrid og trékylfur. Pantanir fara fram á jonheidar@gagolf.is - einstakt tækifæri fyrir kylfinga. Í pöntun þarf að koma fram nafn og kennitala þess sem ætlar að fá mælingu. Einnig er hægt að panta hálftíma mælingu hjá honum á 6.000kr og þá er annað hvort mælt fyrir járn/hybrid eða driver/tré.

Tilvalið að koma í mælingu og finna hvernig kylfur skal kaupa sér fyrir haustið, forgjafalækkandi kylfur á góðu verði! 

Nánar um Birgi á golfkylfur.is