Biggi kylfusmiður verður fyrir norðan með mælingar í byrjun apríl

Þá er loksins komið að því að Birgir Björnsson kylfusmiður hjá golfkylfur.is mætir norður og verður með mælingar í Golfhöllinni laugardaginn 6. apríl og sunnudaginn 7. apríl.

Til að bóka sig í mælingar er fólk beðið um að senda tölvupóst á jonheidar@gagolf.is.

Birgir verður á laugardeginum frá 10:30-19:00 og sunnudeginum frá 10-18 og mætir með allt það nýjasta frá Titleist og Ping.

Hægt er að bóka hálftímamælingar á járnum eða trékylfum á 9.000kr eða klukkutímamælingu á öllu á 16.900kr

Einstakt tækifæri fyrir GA félaga og aðra í kring að nýta sér þann besta í bransanum og fá kylfurnar sem henta hverjum og einum.