Bændaglíma GA 2021 - Laugardagurinn 9. október

Þá er loksins komið að Bændaglímu GA 2021! 

Mótið verður í blíðunni á laugardaginn, ræst út af öllum teigum kl.10:00, mæting í skálann kl.9:30. 

Liðin verða gerð kunngjör á föstudegi og verður raðað í bláa og rauða liðið og hvetjum við kylfinga til að koma klæddur í litum síns liðs.

Það munu síðan tveir spila saman á móti öðrum tveimur, betri bolti með forgjöf og spiluð holukeppni. Forgjöf er hæst veitt 24 hjá körlum og 28 hjá konum.

Gjaldið er 3.000kr á einstakling og er innifalið í því súpa og með því hjá Vídalín að leik loknum.

Skráning er á golfbox, jonheidar@gagolf.is eða í síma 462-2974.