Árgjöld GA fyrir 2021 komin í heimabankann

Kæru GA félagar

Þá hafa verið stofnaðar kröfur fyrir árgjöldum 2021 í heimabanka ykkar. Sem fyrr sendum við ekki út greiðsluseðla, þeir birtast í heimabankanum ykkar.

Langar okkur því að hvetja ykkur félagar góðir að ganga frá ykkar árgjaldi um leið og kostur er. Við minnum á að þeir félagar sem hafa greitt árgjöldin sín fyrir 15. mars fá inneign upp á parkort á Klöppum æfingasvæði. Til að fá áfyllinguna þurfa kylfingar að fá kvittun fyrir greiðslu og koma með hana á skrifstofu GA í Golfhöll. 

Gjalddagar eru 1. janúar, 1. febrúar og 1. mars og eindagar 15.janúar, 15. febrúar og 15. mars. 

 

Bkv

GA