Árgjöld fyrir 2019 komin í heimabanka

Kæru GA félagar

Þá hafa verið stofnaðar kröfur fyrir árgjöldum 2019 í heimabanka ykkar. Sem fyrr sendum við ekki út greiðsluseðla, þeir birtast í heimabankanum ykkar.

Langar okkur því að hvetja ykkur félagar góðir að ganga frá ykkar árgjaldi um leið og kostur er. Við minnum á að þeir félagar sem hafa greitt árgjöldin sín fyrir 15. mars fá inneign upp á parkort á Klöppum æfingasvæði. Til að fá áfyllinguna þurfa kylfingar að fá kvittun fyrir greiðslu og koma með hana á skrifstofu GA í Golfhöll. 

Gjalddagar eru 30. nóvember, 31. desember og 31. janúar og eindagar 15.desember, 15. janúar og 15. febrúar.