Einu sinni....... vorum við hér hjá Golfklúbbnum alltaf með vélamót til styrktar kaupum á nýjum vélum.
Þetta lagðist svo af en nú erum við að hugsa um að hafa 2 - 3 mót í vor þar sem innkoman mun ganga upp í kaup á valtara sem keyptur var til að gera flatir betri.
Fyrsta mótið er Flaggakeppni. Hver kylfingur fær par vallarins + vallarforgjöf, leikinn er höggleikur kylfingur setur niður flagg þar sem hann hefur klárað sinn höggafjölda. Sá sem kemst lengst með flaggið sigrar.
Verðlaun fyrir EFSTA sætið og dregið svo úr 4 skorkortum - Viðkomandi þarf EKKI að vera á staðnum að þessu sinni :)
Skráning á www.golf.is rástímar frá kl. 10.00 - 13.00
Mótsgjald kr. 1.500.-