Klárum að setja dúka yfir grínin á morgun!

Á morgun, 4.maí  ætla sjálfboðaliðar GA að reyna að klára að leggja dúka yfir grínin klukkan 10:00 en þetta er gríðarlega mikilvægt fyrir okkur svo að grínin verði sem best í sumar þegar við opnum.

Sjálfboðaliðarnir ætla að hittast í vélaskemmunni klukkan 10:00 og fara af stað út á völl, því fleiri sem geta hjálpað því fljótlegra verður verkið.

Ef einhverjir hafa tök á að aðstoða geta þeir mætt upp í skemmu klukkan 10:00 eða haft samband við Bjarna formann, sem fer fyrir verkinu, í síma 660-1647.