Næstkomandi sunnudag verður opinn félagsfundur hjá Golfklúbbi Akureyrar á Jaðri.
Fundurinn hefst kl. 11:00 og er áætlað að hann taki ca. 90 mínútur. Jón Vídalín mun svo bjóða upp á léttar veitingar að fundi loknum.
Á fundinum verður farið yfir áherslur sumarsins og það sem framundan er í viðhaldi og umhirðu vallarins.
Kynntar verður niðurstöður viðhorfskönnunarinnar sem send var á félagsmenn.
Einnig höfum við boðið fulltrúum þeirra stjórnmálaflokka sem bjóða fram í sveitarstjórnarkostningunum nú í vor í heimsókn til okkar þar sem þeir ætla að segja okkur frá þeirra áherslum á íþrótta og félagsstarf á komandi kjörtímabili.
Vonandi sjáum við sem flesta.