Stefna og GA undirrita styrktarsamning

Eins og flestir lesendur okkar hafa tekið eftir hefur heimasíða okkar tekið stakkaskiptum síðustu mánuði og er nýtt og betrumbætt útlit heimasíðunnar tekið við og hefur því verið hampað víðs vegar. Það eru okkar menn í Stefnu sem sáum um útlitshönnun og uppsetningu heimasíðunnar gagolf.is og kunnum við þeim bestu þakkir fyrir og ríkir gríðarleg ánægja hjá GA félögum með nýtt útlit heimasíðunnar en hún þykir einnig einkar aðgengileg í farsímum sem er gríðarlega mikilvægt nú á tímum tækninnar.

GA og Stefna skrifuðu undir samstarfssamning á dögunum og koma þeir inn í flóru fyrirtækja sem aðstoðar okkur hjá GA að hafa allt eins og best verður á kosið fyrir klúbbfélaga okkar og aðra gesti. Við kunnum þeim bestu þakkir fyrir og hlökkum til samstarfsins.