Lundsvöllur opinn alla helgina

Nú um helgina fer fram sveitakeppni eldri kylfinga 1. og 2. deild kvenna hér á Jaðri sem þýðir að Jaðarsvöllur verður að mestu lokaður á föstudag og laugardag og fyrri part sunnudags.

Við minnum GA félaga á að Lundsvöllur stendur þeim til boða endurgjaldslaust og því tilvalið að skella sér austur í Lundsskóg og spila þar um helgina. Völlurinn er í flottu standi og skemmtilegt fyrir kylfinga okkar að geta nýtt sér þennan völl á meðan Jaðar er upptekinn fyrir GSÍ mót.