Vinnudagur og opnun golfvallar

Næstkomandi laugardag, 23, maí verður vinnudagur hjá okkur hér á Jaðri.

Hefst vinnudagurinn kl. 10:00 og vonumst við að sjálfsögðu til þess að sjá sem flesta GA félaga :)

Að vinnudegi loknum verður boðið upp á léttar veitingar og svo munu þeir sem tóku til hendinni skella sér í golf.

Jaðar opnar svo formlega sunnudaginn 24. maí.  Við munum því miður ekki geta opnað meira en holur 1 - 9 þar sem enn er nokkur bleyta í suður vellinum.  Hann verður opnaður um leið og tækifæri gefst til í næstu viku.

Einnig hefur verið tekið ákvörðun um það að bíða aðeins með að opna nýju brautirnar.  Vorið hefur verið kalt og því skynsamlegra að gefa þeim ca. 2  vikur í viðbót og hleypa þeim betur af stað.

Formlegt opnunarmót Jaðars verður svo haldið laugardaginn 30 maí.

Gleðilegt golfsumar :)