Tilboð á aðild í GA

Golfklúbbur Akureyrar hefur ákveðið að bjóða þeim kylfingum sem áhuga hafa á því að ganga í GA upp á frábært tilboð.

Þeir sem ganga í GA núna greiða fyrir það 25 þúsund krónur og geta þá spilað golf á völlum GA það sem eftir lifir sumars.  Einnig hafa þeir fullan aðgang í allan vetur að Golfhöllinni.  Þess ber að geta að GA félagar greiða ekkert aukalega fyrir aðstöðuna þar auk þess sem það er ódýrara fyrir GA félaga að fara í golfhermana.

Hvetjum við alla sem langar í golf að nýta sér þetta frábæra tilboð og njóta þess að spila golf það sem eftir lifir sumars við frábærar aðstæður.

Allar nánari upplýsingar í síma 462 2974