Þorrahlaðborð föstudaginn 17. febrúar í golfskálanum að Jaðri fyrir GA félaga og gesti. Meðfylgjandi er það sem boðið verður upp á hjá Vídalín veitingum.
Það þarf að vera búið að skrá sig fyrir kl. 13.00 fimmtudaginn 16. febrúar. Skráning á halla@gagolf.is eða í síma 896 6814/462 2974
Húsið opnar kl 19.30
Matseðill
- Hangikjöt, Saltkjöt, Súrsaðir Hrútspungar, Sviðasulta ný, Sviðasulta súr, Grísasulta ný, Grísasulta sýrð, Lifrapylsa ný, Blóðmör súr, Harðfiskur, Hákarl, Lundabaggar súrir, Bringukollar súrir, Magáll
Meðlæti
- Laufabrauð, rúgbrauð, rófustappa, kartöflur, uppstúfur, smjör, rauðkál, salat.
Verð kr. 2.900.-
Þorri er nefndur í heimildum frá miðöldum sem persónugervingur eða vættur vetrar og þar er einnig minnst á þorrablót. Ekki er vitað hvernig þeim var háttað en lýsingarnar benda þó til mikilla veisla og að menn hafa gert vel við sig í mat og drykk. Engar frásagnir eru í Íslendingasögum eða öðrum fornsögnum sem gerast á Íslandi. Þorrablótin eiga upptök sín að rekja til íslenskra stúdenta í Kaupmannahöfn, eða að minnsta kosti héldu þeir þorrablót 1873 Þorrablótin lögðust svo af en um miðja tuttugustu öldina var farið að halda þorrablót á veitingastaðnum Naustinu í Reykjavík, þar sem fram var borinn „hefðbundinn“ íslenskur matur, súr, reyktur og/eða saltaður. Síðan hefur tíðkast að halda þorrablót einhvern tímann á þorra, oftast á vegum félaga og ýmissa samtaka.



Athugasemdir