Tæma norður-fjós og gáma um helgina.

Kæru kylfingar

Nú ætlum við að ráðast í framkvæmdir í norður-fjósinu á mánudag/þriðjudag og rífa skápana, mála og fleira. Því biðjum við alla kylfinga sem ennþá eru með settin sín í skápunum þar að koma um helgina, í síðasta lagi á mánudag og tæma skápana.

Einnig biðjum við þá kylfinga sem eru með sett í skápum í gámunum báðum að tæma þá og skila lyklunum til GA, merktum með númeri af skáp.

Ef þið komist ómögulega í það, vinsamlegast hafið samband við okkur á netfangið skrifstofa@gagolf.is.