Steindór Kr. Ragnarsson ráðinn framkvæmdastjóri GA

Steindór Kr. Ragnarsson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri GA.  Steindór er félögum vel kunnugur, en hann hefur starfað sem vallarstjóri GA undanfarin 15 ár.

Steindór er menntaður í golfvallafræðum frá Elmwood College í Skotlandi.  Steindór hefur einnig gegnt margvíslegum trúnaðarstörfum og er nú formaður Samtaka íþrótta- og golfvallarstarfsmanna á Íslandi.

„Ég er mjög spenntur fyrir þessari áskorun, hér er mikil uppbygging búin að vera í gangi síðustu ár og verður gaman að fá að vinna enn nánar að frekari framförum.

 

Stjórn GA býður Steindór velkominn í nýtt starf hjá GA og væntir mikils af samstarfi við hann.