Slippfélagið býður kylfingum í GA upp á frábær tilboð

Golfklúbbur Akureyrar og Slippfélagið skrifuðu nýverið undir áframhaldandi samstarfssamning.

Í tilefni af því ætlar Slippfélagið að bjóða öllum félögum í GA upp á frábær tilboð í verslun sinni að Gleráreyrum.  Það verður í boði allt að 45% afsláttur af völdum vörum og því tilvalið að skella sér í Slippfélagið og gera góð kaup fyrir vorið.

GA félagar munu fá afhendan afsláttarmiða frá Slippfélaginu með félagsskírteinunum sem nú er hægt að nálgast á Jaðri.