Skráning í Meistaramót GA í fullum gangi

Skráning í Meistaramót GA i fullum gangi þessa stundina! 

Hvetjum alla kylfinga til að skrá sig í mótið - þetta er mót sem allir GA meðlimir ættu að taka þátt í. 

Skráning er inn á golf.is eða á skrifstofa@gagolf.is.  - ATH breyting er á að konur 50+ leika aðeins 3 daga 

Á laugardagskvöldið verður síðan grillað og við hjá GA ætlum að gera okkur glatt kvöld saman. 

Meistaraflokkur karla: Forgjöf til 6 - hvítir teigar

1. flokkur karla: 6,1-12,5 gulir teigar

2. flokkur karla: 12,6-18 gulir teigar

3. flokkur karla: 18,1-24,5 gulir teigar

4. flokkur karla: 24,6-34 bláir teigar

5. flokkur karlar 34,1-54 bláir teigar

Meistaraflokkur kvenna: Forgjöf til 14,5 - bláir teigar

1. flokkur kvenna: 14,6-26,4

2. flokkur kvenna: 26,5-36

3. flokkur kvenna: 36,1-54

Öldungar:

Karlar 50+ leika 4 daga - gulir teigar

Karlar 65+ leika 3 daga - rauðir teigar

Konur 50+ leika 3 daga - rauðir teigar

Konur 65+ leika 3 daga - rauðir teigar 

Rástímar eru frá 12:00 á miðvikudag, fimmtudag og föstudag og frá 8:00 á laugardag og er röðunin svona fyrstu þrjá dagana: 

Öldungar
5. flokkur karlar
4. flokkur karlar
3. flokkur karlar&konur
2. flokkur karlar&konur
1. flokkur karlar&konur
Mfl. karlar&konur 

Veðurspáin er góð fyrir dagana og viljum við sjá sem flesta á Meistaramótinu okkar :)