Stjórn Golfklúbbs Akureyrar boðar til sameiginlegs fundar með öllum nefndum Golklúbbsins
Fimmtudaginn 2. febrúar kl. 20.00 að Jaðri
Vill stjórn biðja formann hverrar nefndar/fulltrúa úr nefnd að gera stutta grein fyrir störfum sinnar nefndar, hvað hefur verið efst á baugi í vetur og hvað er framundan.
Stjórn GA leggur áherslu á að allar nefndir klúbbsins séu virkar. Verkefni nefnda eru mismunandi, en meðal mikilvægustu verkefna flestra þeirra er að gera áætlanir um starfsemi sína, bæði til skemmri og lengri tíma. Með þessu móti er auðveldara að kynna framtíðaráætlanir fyrir félögum og hafa þá þannig upplýsta um framgang mála, auk þess sem starf nefndanna verður markvissara.
Meðal nefndarmanna býr mikil reynsla sem er ómetanleg í starfi klúbbsins, en einnig er ánægjulegt að sjá hversu margir nýjir félagar hafa komið að nefndunum að undanförnu með ferskar og góðar hugmyndir sem munu nýtast vel á komandi misserum.
Stefnumótun GA verður til umræðu og ef það er eitthvað sem þar mætti uppfæra þá tökum við það fyrir á þessum fundi.
Annars bara almennt spjall um starfsárið sem framundan er
Hlökkum til að sjá ykkur öll Vallarnefnd Kappleikjanefnd Forgjafarnefnd Aganefnd Húsnefnd Fjáröflunarnefnd Unglinganefnd Afreksnefnd Arctic open nefnd Kvennanefnd Öldunganefnd og Nýliðanefnd.


Athugasemdir