Rúmlega 10% fengu leiðréttingu við endurskoðun forgjafar

Golfsambandið hefur nú lesið inn árlega endurskoðun forgjafar á golf.is frá öllum golfklúbbum fyrir árið 2014. En það voru rúmlega 10% allra kylfinga sem uppfylltu ákveðin skilyrði og fengu leiðréttingu.

Hér má sjá hvernig þetta skiptist hjá þeim sem fengu leiðréttingu.

Lækka um 1 í forgjöf      37 %
Lækka um 2 í forgjöf      14 %
Hækka um 1 í forgjöf     29 %
Hækka um 2 í forgjöf     20 %

Með því að skrá sig inn á golf.is og skoða forgjafaryfirlit geta kylfingar séð hvort þeir séu í hópi þeirra 10% sem fengu leiðréttingu á forgjöfinni.