Örfá sæti laus í Vetrarmótaröðina

Vetrarmótaröð GA 2017

Í vetur munum við standa fyrir skemmtilegri vetrarmótaröð í E6 golfherminum (Trackman).  
Keppt er í tveggja manna liðum og er spiluð foursome holukeppni (annað hvert högg) með 4/5 forgjöf.  

Hámarskforgjöf leikmanna er 24 hjá körlum og 36 hjá konum.  
Liðunum verður svo skipt uppí riðla, eftir fjölda þátttakenda og spila öll liðin innbirðis í hverjum riðli.  
Tvö efstu liðin úr hverjum riðli, að lokinni riðlakeppninni fara svo áfram í úrslitakeppni (t.d. 8 liða úrslit)

  • Stefnum að því að hafa nokkra 4-5 liða riðla
  • Þannig fær hvert lið að spila a.m.k. 3-4 leiki
  • Fursome holukeppni, með 4/5 forgjöf, tekur um 2 klst. að spila 18 holu leik
  • Leiktími hverns leiks bókast í sameiningu af liðunum sem mætast hverju sinni
  • Ákveðin lokadagsetning sett á hverja umferð
  • 1 stig hlýst fyrir sigur á hverjum leik, hvort lið fær ½ stig við jafntefli.
  • Tvö efstu liðin úr hverjum riðli fara svo áfram í úrslitakeppni


Skráning liða, með fullu nafni, símanúmeri og forgjöf beggja leikmanna sendist á:
sturla@gagolf.is fyrir 1. desember. 
 

Þáttökugjald er kr. 10.000 kr. á hvert lið og þá innifalin öll notkun á Trackman herminum á meðan keppninni stendur. 
Mótsgjaldið skal greiða fyrir 1. desember í Golfhöll GA.  
Fyrsta umferð verður svo leikin frá og með mánudeginum 5. desember.