Opna Coca Cola mulligan mótið

Nú verður stuð næsta sunnudag. 17.september.

Opna Coca Cola texas mótið verður um helgina.

2 saman í liði.

Við ætlum aðeins að hrista upp í hefðbundnum golfreglum í þetta skiptið. Hvert lið má einu sinni á hringnum fá einn mulligan (auka tilraun) og einnig má kasta kúlunni einu sinni í stað þess að slá hana með golfkylfu. Þetta má bæði í upphafshöggi og á braut. Það má ekki nota kastið inn á gríni.

Síðast en ekki síst ætlar Steindór vallarstjóri að hafa 2 holur inn á grínunum á seinni níu. Þá velja kylfingarnir í hvorra holuna þeir vilja klára holuna.

Þetta verður stemning!

 Forgjöf liðs er reiknuð samanlögð leikforgjöf kylfinga deilt með 5 og má forgjöf liðs ekki vera hærri en leikforgjöf kylfings með lægri forgjöf. 

Konur og 70 ára og eldri spila á rauðum teigum.

Hámarksleikforgjöf karla er 24 og kvenna 28. 

Verðlaun eru veitt fyrir 3 efstu sætin ásamt fjölda aukavinninga, meðal annars næstur holu á öllum par 3 og lengsta drive karla/kvenna á 17.braut.

1. sæti.  Ecco skór verðmæti 30 þús x2, helgarleiga á bíl frá Bílaleigu Akureyrar x2, 2 rútur af Víking x2 , rautt og hvítt x2  og 3000 kr inneign á Greifanum x 2.

2. sæti.  Titleist Vokey wedge x 2, rúta af Viking x2, rautt og hvítt x2, helgarleiga á bíl frá Bílaleigur Akureyrar x2 og 3000 kr inneign á Greifanum x2.

3. sæti.  Hringur fyrir 4 á Golfklúbbi Odds x2, rúta af Víking og rautt og hvítt x2.

Mótsgjald 3500 krónur á mann.

 

Dregið úr skorkortum í lok móts.

Skráning á golf.is

Mótsstjórn áskilur sér rétt til að færa holl saman ef þörf er á.