Opinn dagur í Golfhöllinni um liðna helgi

Síðastliðinn laugardag stóð GA fyrir opnum degi í Golfhöllinni.

Tókst hann virkilega vel og fjöldi fólks sem kíkti við og prófaði okkar frábæru inniaðstöðu.  Golfhermarnir voru báðir opnir og sáust skemmstileg tilþrif þar auk þess sem nýráðinn golfkennari GA, Sturla Höskuldsson var á svæðinu og gaf kylfingum góð ráð.

Þökkum við öllum þeim sem komu til okkar kærlega fyrir komuna og vonandi sjáum við alla aftur í Golfhöllinni.