Liðapúttmótaröð GA 2016

Nú ætlum við að fara af stað aftur með  Liða púttmótaröð GA.  Hún tókst mjög vel í fyrra og vonandi fáum við fleiri lið nú í ár í þetta skemmtilega mót.

Fyrirkomulag keppninnar verður þannig að fjórir einstaklingar mynda hvert lið. (Hverju liði er þó heimilt að hafa einn varamann, sem tilkynna þarf við skráningu). Þegar að skráningarfrestur rennur út verður dregið í riðla og keppni hefst. Það spila allir við alla í sínum riðli.  Þegar að riðlakeppni líkur verður úrslitakeppni haldin og stefnt er að því að hún fari fram upp úr miðjum apríl ( fer þó allt eftir fjölda liða).

Í hverri umferð í riðlakeppninni verða spilaðir tveir einmenningar og einn tvímenningur og er hver leikur 36 holu holukeppni.

Góð verðlaun í boði fyrir efstu liðin.

Þátttökugjald er 2000 krónur og rennur þátttökugjaldið í unglingastarf GA.

Skráning fer fram á agust@gagolf.is eða í síma 857 7009

Skráningafrestur er til og með 12. febrúar.  Fyrsta umferð hefst svo mánudaginn 15. febrúar. (gefnir verða nokkrir dagar til að klára hverja umferð fyrir sig)

Allir velkomnir.