Golfvöllurinn opnar í dag - Golfmót á laugardaginn

Við ætlum að opna Jaðar aftur í dag fyrir spil.  Norðurvöllurinn verður opinn  og hægt er að bóka rástíma á golf.is.

Hvetjum við alla kylfinga til þess að ganga vel um og laga eftir sig boltaför og kylfuför.

Við ætlum einnig að vera með golfmót á laugardaginn.  Ræst verður út af öllum teigum kl. 11:00 og ætlum við að spila 13 holur, (spilum holur 1  til 12 og 18).  Það er því pláss fyrir 76 kylfinga í mótið.  Skráning er hafin á golf.is.

Keppnisfyrirkomulag er punktakeppni og veitt verða verðlaun fyrir fyrstu 3 sætin.  Þátttökugjald er 2500 krónur.

Þetta er allt með fyrirvara um veður og því gæti þetta breyst ef það kólnar í veðri.

ATH:  RÆST VERÐUR ÚT AF ÖLLUM TEIGUM KL. 11:00