Framkvæmdir við nýtt æfingasvæði hafnar

Leiðin að verða greið
Leiðin að verða greið

Nú um helgina mættu nokkrir galvaskir GA félagar og felldu nokkur tré.  Ástæða þess er sú að göngustígur sem á að vera frá klúbbhúsinu og yfir á nýja par 3 æfingavöllinn fer í gegnum lundinn á milli núverandi sjöundu og áttundu brautar.  Þar er talsvert magn af trjám og því þurfti að fella nokkur svo að hægt sé að búa til göngustíg þar í gegn.

Stígstæðið að taka á sig mynd

Hér er komið niður á 1. teig á litla vellinum