Fræðslu og nýliðakvöld

Næstkomandi miðvikudag, 27. maí mun Golfklúbbur Akureyrar standa fyrir fræðslu og nýliðakvöldi.

Fer það fram á Jaðri og hefst kl. 20:00.  Þar munu Ágúst, framkvæmdastjóri GA, Sturla golfkennari og Steindór vallarstjóri fara yfir ýmsa hluti er viðkemur GA, golfvellinum og golfkennslu.

Einnig mun Jón Viðar Þorvaldsson héraðsdómari í golfi fara yfir helstu golfreglurnar.

Hvetjum við félagsmenn til að fjölmenna, bæði nýliða sem og lengri komna.

Gleðilegt golfsumar