Fjórar umferðir búnar í liðapúttmóti GA

Nú er fjórum umferðum lokið í liðapúttmótinu okkar og þar voru margir spennandi leikir sem réðust í bráðabana.

Nú er einungis 1 umferð eftir og mikil spenna fyrir lokaumferðina.  Eftir þessar fjórar umferðir eru 3 lið jöfn í efsta sæti með þrjá vinninga.  Einnig er mikil spenna um það hvaða lið kemst áfram með þremur efstu í úrslitakeppnina.

Úrslitakeppnin fer fram fimmtudaginn 12. mars og hefst kl. 20:00

Stöðuna má sjá hér