Fjölskyldudagur GA

Núna á sunnudaginn (21/8) kl. 14-16 munum við halda skemmtilegan fjölskyldudag GA.

Allir krakkar sem hafa verið að æfa golf í sumar eða verið í golfskóla GA geta þá komið og tekið með sér foreldra, systkini, afa og ömmu o.sfrv. til að leyfa þeim að koma og prófa golfið með sér!

Golfkennara GA ásamt keppnisunglingum GA verða á staðnum og leiðbeina, en boðið berður uppá pútt, vipp og slátt á æfingasvæðinu ásamt möguleikanum á því að fara saman út á völl og spila nokkrar holur. Lánskylfur á stðanum.

Allir fá grillaðar pylsur og Svala að lokum.

Vonumst til að sjá sem allra flesta á sunnudaginn!

Með kveðju,
Golfkennar GA