Barna og unglingaæfingar falla niður þessa viku og næsta

Allar æfingar hjá GA falla niður í þessari viku sem og þeirri næstu.  Hefjast þær því aftur mánudaginn 14 apríl.

Þeim krökkum sem æfa golf hjá GA gefst kostur á því að fara í Trackmaninn í stað æfinganna og er búið að taka hann frá á milli kl. 15 og 18 mánudag til fimmtudag.  Hvetjum við ykkur endilega til að koma og spila smá golf í Trackmaninum eða kíkja aðeins á æfingasvæðið.