Vinur á vin

Skráðu þig á póstlistann hjá okkur

Vinur á vin

ÆfingaflatirNýliðanefnd ásamt stjórn klúbbsins hefur verið með sérstakt átak til að fjölga félögum í klúbbnum. Markmiðin eru stór og metnaðarfull. Til að kynna klúbbinn og félagstarfið, inniaðstöðuna og námskeiðahald fengum við N4 í lið með okkur ásamt því að bjóða upp á opna daga í inniaðstöðunni , Óli er með 2 byrjendanámskeið í gangi sem fullt er á og ný í burðarliðnum. Einnig er námskeið í gangi 7 – 10 ára barna.  En betur má ef duga skal...

Vinur á vin

Nú þarf GA á okkur félagsmönnum að halda, auðveldasta leiðin fyrir GA til að auka tekjur er að fjölga félögum.  Þess vegna leitum við til ykkar félaganna og blásum til átaks í fjölgun nýliða sem við nefnum Vinur á vin.  Við hvetjum alla til að taka þátt,  markmiðið er að átakið skili okkur 100 nýjum GA félögum árið 2012.

Fyrirkomulag

Átakið stendur til 5 júlí 2012.  GA félagar finna einhvern vin, vinnufélaga eða skyldmenni sem ekki eru í GA  og hefur áhuga á að kynna sér golf. Þið skráið ykkur og nýliðann saman á skrifstofu GA eða sendið póst á gagolf@gagolf.is.  Þið takið svo þennan einstakling í „fóstur“ með því að kynna fyrir honum það sem GA hefur upp á að bjóða,  svo sem námskeið,  inniaðstöðuna, helstu golfreglur, golfvöllin og að sjálfsögðu spilið með viðkomandi.

Allir nýliðar sem skráðir eru í þetta átak og fara á nýliða námskeið hjá Óla fá kr. 12.000.- í afslátt (Námskeiðsgjaldið) af ársgjaldi GA 2012 með því að framvísa kvittun frá Óla við skráningu í GA fyrir 5. júlí.

Happapottur

Fyrir GA félaga til að komast í happapottinn þarf hans nýliði að vera orðinn félagi í GA fyrir 5. júlí 2012.  Í lok sumars verður haldið Texas scramble golfmót þar sem GA félagi og nýliði spila saman Vinur á vin, veitt verða verlaun fyrir 5 efstu sætin.  Síðan fara nöfn þeirra GA félaga sem koma nýliðum sínum alla leið í pott sem dregið verður úr i mótslok.   Potturinn stækkar eftir fjölda þeirra nýliða sem skráðir verða í GA undir þessu átaki.

100 nýliðar eða fleiri.  10 heppnir GA félagar dregnir út.
  • 3 x 25.000 kr afsláttur af árgjaldi GA fyrir 2013
  • 3 x  miðar á Arctic Open 2013
  • 4 x miðar á meistaramót GA 2013
50 nýliðar eða fleiri. 7 heppnir GA félagar dregnir út.
  • 2 x 25.000 kr afsláttur af árgjaldi GA fyrir 2013
  • 2 x miði á Arctic Open 2013
  • 3 x  miðar á meistaramót GA 2013
Færri en 50 nýliðar. 5 heppnir GA félagar dregnir út
  • 1 x 25.000 kr afsláttur af árgjaldi GA fyrir 2013
  • 2 x  miði á Arctic Open 2013
  • 2.  miðar á meistaramót GA 2013

Svæði