Staðarreglur

Skráðu þig á póstlistann hjá okkur

Staðarreglur

Eftirfarandi eru staðarreglur fyrir sumarið 2011.  Uppfærðar staðarreglur birtast hér við upphaf golftímabilsins í vor.

Staðarreglur 2011

1. Vallarmörk eru girðingar umhverfis völlinn og hvítar stikur. Þegar 10. braut er leikin merkja hvítar stikur vinstra megin brautar vallarmörk, annars eru þær óhreyfanlegar hindranir. (REGLA 24-2)

2. Öll mannvirki eru hluti vallar nema vegir og stígar gerðir af mönnum.

3. Eftirtaldir hlutir eru óhreyfanlegar hindranir (REGLA 24-1)

  • jarðfastir steinar á snöggslegnu svæði á leið
  • vatnskranar og vökvunarbúnaður
  • allir hælar á vellinum (bláir , gulir og rauðir) og stefnu- og fjarlægðarhælar
  • auglýsingaskilti, ruslafötur og kúluþvottastandar.

4. Steinar í glompum eru hreyfanlegar hindranir (REGLA 24-2)

5. Rafeindabúnaður eingöngu til fjarlægðarmælinga, s.s. GPS og Laser, er leyfður samkvæmt heimild í úrskurði 14-3/0.5 í Decisions of the Rules on Golf 2008-2009.  Ef á meðan fyrirskipuð umferð er leikin, leikmaður notar tæki sem er hannað til að mæla eða meta aðrar aðstæður sem geta haft áhrif á leik hans svo sem halla, vindhraða, hitastig o.s.frv. er leikmaður brotlegur við reglu 14-3 en víti fyrir það er frávísun án tillits til hvort slík viðbótarhlutverk tækisins voru hagnýtt í raun.

Farsímar og önnur fjarskiptatæki eru bönnuð í öðrum tilgangi en að kalla til dómara.

Bolta sem liggur á snöggslegnu svæði á leið má lyfta, hreinsa og leggja aftur innan kylfulengdar frá þeim stað sem hann upphaflega lá, en ekki nær holu og ekki í torfæru. Bolta má lyfta og leggja einu sinni í senn. Bolta á flötum má færa púttershaus, en ekki nær holu.

Að öðru leyti skal leika eftir reglum “Rules of golf as approved by R & A Rules limited and The United States Golf Association”                 

Tvö högg í víti  fyrir brot á staðarreglu

Merkingar á velli:

  • Bláir hælar:       Grund í aðgerð
  • Gulir hælar:       Vatnstorfæra
  • Rauðir hælar:    Hliðarvatnstorfæra
  • Hvítir hælar:      Utan vallar

Svæði