Golfhöllin

Skráðu þig á póstlistann hjá okkur

Golfhöllin

Golfhöllin - pútt- og vippaðstaðaGA býður félögum sínum fyrsta flokks aðstöðu í Golfhöllinni þar sem hægt er að æfa sig yfir vetrarmánuðina.  Hægt er að æfa sveifluna með því að slá í net og púttin og vippin á fyrsta flokks teppum sem sérhönnuð eru til golfæfinga. 

Aðgangur að Golfhöllinni er innifalinn í árgjaldi í GA.

Opnunartími Golfhallarinnar er frá kl. 12-21 virka daga og frá kl. 10-17 um helgar. 

Golfhermir

Einnig er í Golfhöllinni golfhermir þar sem hægt er að velja á milli nokkurra valla. Golfhermirinn er kjörinn fyrir 2-4 manna hópa til að halda sveiflunni við yfir vetrarmánuðina á skemmtilegan hátt.

Upplýsingar um opnunartíma og verðskrá golfhermisins eru hjá Rúnari í síma 663 6802.

Svæði